laugardagur, febrúar 11, 2006

Ég er búin að sitja í allan dag við skjáinn og dunda mér við að henda linkum inn á síðuna og skrifa "profile-ið" mitt. Átti í einhverjum erfiðleikum með að setja inn mynd með þar, en það verður bara að bíða betri tíma. Færlslan hérna að ofan er jú síðan í janúar og leið aðeins lengri tími en ég ætlaði mér þangað til nú. Upphaflega ætlaði ég að fá mér nýja síðu vegna þess að mér líkaði ekki hin en svo kom það upp á daginn að einhver djöfull flutti þar inn og ég þurfti því að hlaupast á brott.
En hungrið hefur sagt til sín svo ég ætla að hlaupa niður í kvöldmat....svo bæjjó
Kv. Hildur Ása

1 ummæli:

Hildur sagði...

Góð ábending, hafði ekki hugmynd um að þetta væri svona. Ég ætla þá að fara að fikta í þessu.